Sony WH-1000XM6 – Þráðlaus heyrnartól
Sony WH-1000XM6 eru nýjustu flaggskipsheyrnartólin frá Sony og taka við af hinum vinsælu WH-1000XM5. Nýr QN3 örgjörvi, sjö sinnum hraðari en sá sem var í XM5, stýrir 12 hljóðnemum og lagar hávaðadeyfinguna stöðugt að umhverfinu. Útkoman er ein besta hávaðadeyfing sem völ er á, hvort sem þú ert í flugvél, strætó eða á opnu skrifstofurými.
Hljómurinn er stilltur í samstarfi við þekkta hljóðblöndunarmenn og 30 mm hátalarar skila tærum og jöfnum hljómi. Rafhlaðan endist í allt að 30 klukkustundir með hávaðadeyfingu og þriggja mínútna hleðsla dugar í allt að þrjá tíma. Heyrnartólin leggjast nú saman á ný og koma í nettri burðartösku, svo auðvelt er að taka þau með í ferðalagið.
Helstu eiginleikar:
- Öflug hávaðadeyfing: QN3 örgjörvi og 12 hljóðnemar sem laga deyfinguna sjálfkrafa að umhverfinu.
- Vandaður hljómur: 30 mm hátalarar, LDAC fyrir háupplausnarhljóð og DSEE Extreme sem bætir þjappaða tónlist.
- Allt að 40 klst. rafhlaða: 30 klst. með hávaðadeyfingu, 40 klst. án – og 3 mín. hleðsla gefur allt að 3 klst.
- Skýr símtöl: Hljóðnemarnir sía burt vind og umhverfishljóð svo röddin þín heyrist vel.
- Tvö tæki í einu: Tengist síma og tölvu samtímis og skiptir sjálfkrafa á milli.
- Létt og samanbrjótanleg: Aðeins 254 g, leggjast saman og koma í burðartösku.
2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu Sony
| Gerð | Þráðlaus heyrnartól – yfir eyra (over-ear), lokuð, með virkri hávaðadeyfingu |
| Vörunúmer | WH1000XM6B.CE7 |
| Örgjörvi | HD Noise Cancelling Processor QN3 |
| Hljóðnemar | 12 (fyrir hávaðadeyfingu og símtöl) |
| Hátalarar | 30 mm, með koltrefjahvolfi og neodymium seglum |
| Tíðnisvið | 4 Hz–40.000 Hz |
| Tenging | Bluetooth 5.3 (tengist tveimur tækjum í einu) og 3,5 mm snúra |
| Bluetooth kóðar | SBC, AAC, LDAC, LC3 |
| Drægni | U.þ.b. 10 m |
| Rafhlaða | Allt að 30 klst. með hávaðadeyfingu / allt að 40 klst. án |
| Hraðhleðsla | 3 mín. hleðsla gefur allt að 3 klst. spilun (með USB-PD hleðslutæki) |
| Hleðslutími | U.þ.b. 3,5 klst. (USB-C) |
| Stjórnun | Snertistjórnun á heyrnartólunum og Sony Sound Connect app |
| Í kassanum | Heyrnartól, burðartaska, USB-C snúra, 3,5 mm hljóðsnúra |
| Þyngd | U.þ.b. 254 g |
| Litur | Svartur |
| Ábyrgð | 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |