Logitech G Pro X2 Superstrike – Þráðlaus leikjamús
G Pro X2 Superstrike frá Logitech er þráðlaus leikjamús fyrir keppnisspilara sem vilja hraðasta mögulega smell. Í stað hefðbundinna rofa eru aðaltakkarnir með nýju HITS kerfi (Haptic Inductive Trigger System) sem nemur smellinn með spanskynjun og gefur titring í staðinn fyrir „klikkið“. Logitech segir smelltöfina styttast um allt að 30 ms miðað við venjulega rofa.
Lagið er það sama og á hinni vinsælu Pro X Superlight 2, músin vegur aðeins 61 g og notar HERO 2 skynjarann með allt að 44.000 DPI. Allar stillingar eru gerðar í Logitech G HUB.
Helstu eiginleikar:
- Stillanlegur smellur: 10 virkjunarpunktar og 5 stig af rapid trigger á báðum aðaltökkum – þú ræður hvað þarf að ýta langt.
- Stillanleg snertisvörun: Veldu hversu sterkan titring þú finnur við hvern smell.
- HERO 2 skynjari: 100–44.000 DPI, yfir 888 IPS og 88 G hröðun, án jöfnunar eða hröðunar.
- Allt að 8000 Hz þráðlaust: LIGHTSPEED tenging með lágmarkstöf og allt að 90 klst. rafhlöðuending.
2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu Logitech
| Gerð | Þráðlaus leikjamús – fyrir rétthenta |
| Skynjari | Logitech HERO 2 (optical) |
| Næmni | 100–44.000 DPI |
| Hámarkshraði / hröðun | 888+ IPS / 88 G |
| Svartími (polling rate) | Allt að 8000 Hz þráðlaust / 1000 Hz með snúru |
| Aðaltakkar | HITS – 10 virkjunarpunktar, 5 stig rapid trigger, stillanleg snertisvörun |
| Takkar | 5 |
| Tenging | Logitech LIGHTSPEED (2,4 GHz) með USB móttakara og USB-C snúra |
| Rafhlöðuending | Allt að 90 klst. |
| Hugbúnaður | Logitech G HUB |
| Mál (L x B x H) | 125 x 63,5 x 40 mm |
| Þyngd | 61 g |
| Litur | Svartur |
| Vörunúmer framleiðanda | 910-007776 |
| Ábyrgð | 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |