Samsung Galaxy Tab A11+ 5G 128GB – 11" spjaldtölva

  • 42.900 kr
  • Kynningarverð – gildir út 1. desember

Afhendingartími 5-7 virkir dagar

Samsung Galaxy Tab A11+ 5G er þægileg 11" spjaldtölva með 5G tengingu, svo þú ert alltaf nettengdur, líka þar sem ekkert Wi-Fi er. Hún hentar vel í nám, vinnu, myndsímtöl og afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.

Skjárinn er 90Hz með 1920 x 1200 upplausn og fjórir hátalarar með Dolby Atmos gefa gott hljóð í bíómyndum og leikjum. Rafhlaðan er 7.040 mAh og dugar í allt að 15 klst. myndbandsáhorf, og 25W hraðhleðsla styður hana. Tölvan er aðeins 6,9 mm þykk, með microSD rauf og 3,5 mm heyrnartólatengi. Samsung lofar öryggisuppfærslum til ársins 2032.

Helstu eiginleikar:

  • 5G og 4G tenging: Settu SIM kort í og notaðu netið hvar sem er.
  • 11" 90Hz skjár: 1920 x 1200 upplausn og mjúk hreyfing í vafri og leikjum.
  • Dimensity 7300 örgjörvi og 6GB vinnsluminni: Hraðvirk í daglegri notkun og fjölverkavinnslu.
  • 128GB geymslupláss: Hægt að stækka með microSD korti, allt að 2TB.
  • Fjórir hátalarar með Dolby Atmos: Fyllra og skýrara hljóð.
  • Allt að 15 klst. rafhlöðuending: 7.040 mAh rafhlaða með 25W hraðhleðslu.

2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA

Nánari upplýsingar á heimasíðu Samsung

Örgjörvi MediaTek Dimensity 7300, átta kjarna (2,5 GHz + 2 GHz)
Skjár 11" TFT, 1920 x 1200 (WUXGA), 90Hz
Vinnsluminni 6GB
Geymslupláss 128GB, microSD rauf (allt að 2TB)
Myndavél að aftan 8MP með sjálfvirkum fókus
Myndavél að framan 5MP
Hljóð Fjórir hátalarar með Dolby Atmos, 3,5 mm heyrnartólatengi
Farsímanet 5G og 4G LTE, nano-SIM
Tenging Wi-Fi 5 (802.11ac), Bluetooth 5.3, USB-C (USB 2.0)
Staðsetning GPS, GLONASS, Galileo, BeiDou, QZSS
Rafhlaða 7.040 mAh, allt að 15 klst. myndbandsáhorf
Hleðsla 25W hraðhleðsla (hleðslutæki fylgir ekki)
Stýrikerfi Android 16 með One UI 8, öryggisuppfærslur til 2032
Mál 257,1 x 168,7 x 6,9 mm
Þyngd 482 g
Litur Grá
Í kassanum Spjaldtölva, USB-C snúra og SIM nál (hleðslutæki fylgir ekki)
Vörunúmer SM-X236BZAREUB
Ábyrgð 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni

Við mælum með