Ubiquiti UniFi Switch 24 (USW-24) – 24 porta netsviss með 2x SFP tengjum
UniFi Switch 24 er stýrður 24 porta Gigabit Ethernet sviss sem hentar vel í litlum og meðalstórum netkerfum – hvort sem er á skrifstofu, í fyrirtæki eða í stærra heimakerfi. Til viðbótar við 24 GbE tengin eru tvö 1G SFP tengi sem henta til dæmis fyrir ljósleiðaratengingu milli hæða eða bygginga, eða sem tenging við annan sviss.
Svissinn er algjörlega viftulaus og því hljóðlaus í rekstri, sem gerir hann að góðum kosti í rýmum þar sem hávaði skiptir máli. Hann er stýrður í gegnum UniFi Network hugbúnaðinn, samhliða öðrum UniFi-búnaði, og er með litlum snertiskjá framan á sem sýnir stöðu og helstu upplýsingar í fljótu bragði.
Helstu eiginleikar:
- 24 Gigabit Ethernet tengi: Auk 2x 1G SFP tengja fyrir uppfærslutengingu eða ljósleiðara milli svissa.
- Allt að 52 Gbps skiptigeta: Non-blocking afköst tryggja hnökralausa gagnaflutninga, jafnvel undir álagi.
- Hljóðlaus og viftulaus: Engin virk kæling – hentar vel í skrifstofur og önnur rými þar sem hávaði skiptir máli.
- Miðstýrð umsjón: Fullur stuðningur við UniFi Network hugbúnaðinn, VLAN-stuðningur og innbyggður snertiskjár.
2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu Ubiquiti
| Gerð | Stýrður sviss (switch) – Layer 2, 24 porta GbE |
| Tengi | 24x Gigabit Ethernet, 2x 1G SFP |
| Skiptigeta | 52 Gbps (26 Gbps non-blocking) |
| VLAN stuðningur | Allt að 1.000 VLAN |
| Umsjón | UniFi Network hugbúnaður (útgáfa 7.2.94 eða nýrri) |
| Aflnotkun | Allt að 25W – innbyggður 36W AC/DC aflgjafi |
| Festing | 1U rekkafesting (400–1200 mm rekkadýpt) |
| Mál (L x B x H) | 442 x 200 x 44 mm |
| Þyngd | 2,7 kg (2,8 kg með festingum) |
| Rekstrarhitastig | -5°C til 45°C |
| Ábyrgð | 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |