be quiet! Dark Rock Pro 6 – Öflug loftkæling
Dark Rock Pro 6 er nýjasta flaggskipið í loftkælingu frá be quiet! og tekur við af Dark Rock Pro 5. Kælingin er með (dual-tower) hönnun og sjö 6 mm hitapípum sem ráða við allt að 300W (TDP), og hentar því vel öflugustu örgjörvunum frá Intel og AMD.
Tvær Silent Wings PWM viftur, 120 mm og 135 mm, sjá um loftflæðið og halda hávaða í lágmarki – allt frá 7,5 dB(A) upp í 32,4 dB(A) á fullum hraða. Kælingin er hönnuð með tilliti til pláss í kassanum og hentar flestum millistærðar- og stórum turnkössum.
Helstu eiginleikar:
- Allt að 300W TDP: Ræður við öflugustu Intel og AMD örgjörvana, jafnvel við yfirklukkun.
- 2x Silent Wings PWM viftur (120/135 mm): Mikið loftflæði með lágmarks hávaða, frá aðeins 7,5 dB(A).
3 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu be quiet!
| Gerð | Loftkæling fyrir örgjörva – Dual-tower, tvær viftur |
| Hentar fyrir (TDP) | Allt að 300W |
| Sökkulstuðningur Intel | LGA 1851 / 1700 / 1200 / 1150 / 1151 / 1155 |
| Sökkulstuðningur AMD | AM5 / AM4 |
| Hitapípur | 7x 6 mm |
| Viftur | 2x Silent Wings PWM – 120 mm og 135 mm, allt að 2000/1900 sn./mín. |
| Hávaði | 7,5 / 20,2 / 32,4 dB(A) við 50/75/100% hraða |
| Loftflæði | Allt að 135 m³/klst (79,5 CFM) |
| Tengi | 4-pinna PWM |
| Mál (L x B x H) | 147 x 140 x 169 mm |
| Þyngd | 1,34 kg |
| Ábyrgð | 3 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |