Ubiquiti UniFi U7 Mesh (U7-Mesh) – WiFi 7 access punktur fyrir inni og úti
UniFi U7 Mesh er arftaki hins vinsæla U6 Mesh og færir WiFi 7 í sama granna og fjölhæfa formið. Hann hentar jafnt innandyra sem utandyra, nær yfir allt að 140 m² og ræður við yfir 200 tengd tæki samtímis. Endurhannað loftnetakerfi sameinar hefðbundna dreifingu í allar áttir og langdrægt stefnuvirkt loftnet, sem gerir hann sérlega hentugan til að tengjast öðrum UniFi access punktum þráðlaust (mesh) – t.d. út í garð, á pallinn, í bílskúrinn eða milli bygginga.
Access punkturinn er knúinn með PoE og spennugjafi fylgir, ásamt vegg-, staur- og borðfestingu. Hann tengist netinu um 2,5 GbE tengi, er IPX6 vatnsvarinn þegar hann er settur upp með útifestingunni og er stýrður í gegnum UniFi Network hugbúnaðinn, samhliða öðrum UniFi-búnaði.
Helstu eiginleikar:
- WiFi 7 með allt að 4,3 Gbps: 2x2 MU-MIMO á 5 GHz og 2,4 GHz (allt að 688 Mbps) – hraðari og skilvirkari tenging fyrir mörg tæki í einu.
- Langdrægt mesh: Stefnuvirkt 10 dBi loftnet á 5 GHz styrkir þráðlausa tengingu við aðra UniFi access punkta – tilvalið þar sem erfitt er að leggja netsnúru.
- Fyrir inni og úti: IPX6 vatnsvörn og rekstrarhitastig frá -30°C til 60°C, með vegg-, staur- og borðfestingu í kassanum.
- 2,5 GbE tengi og PoE-spennugjafi fylgir: Gögn og rafmagn fara um eina netsnúru, og 2,5 GbE tengið kemur í veg fyrir flöskuháls við hraðvirkan sviss.
2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu Ubiquiti
| Gerð | Access punktur – WiFi 7, inni/úti, með mesh-stuðningi |
| WiFi staðall | WiFi 7 (802.11be) |
| Gagnastraumar | 4 – 2x2 MU-MIMO (5 GHz) og 2x2 MU-MIMO (2,4 GHz) |
| Hámarkshraði | 4,3 Gbps (5 GHz) / 688 Mbps (2,4 GHz) |
| Loftnet (5 GHz) | 6 dBi í allar áttir / 10 dBi stefnuvirkt (langdrægt) |
| Drægni | Allt að 140 m² |
| Fjöldi tækja | 200+ |
| Nettengi | 1x 2,5 GbE (RJ45) |
| Aflgjöf | PoE (42,5–57V) – spennugjafi fylgir |
| Hámarks aflnotkun | 13W |
| Veðurvörn | IPX6 (með útifestingu) |
| Festingar | Veggur, staur eða borð (festingar fylgja) |
| Umsjón | UniFi Network hugbúnaður (útgáfa 10.1.85 eða nýrri) |
| Mál | Ø48,5 x 159,5 mm |
| Þyngd | 313 g |
| Rekstrarhitastig | -30°C til 60°C |
| Ábyrgð | 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |