Ubiquiti UniFi Switch 16 PoE (USW-16-PoE) – 16 porta netsviss með innbyggðu PoE+

  • 64.900 kr

Afhendingartími 5-7 virkir dagar

Ubiquiti UniFi Switch 16 PoE (USW-16-PoE) – 16 porta netsviss með innbyggðri PoE+ aflgjöf

UniFi Switch 16 PoE er stýrður 16 porta Gigabit Ethernet sviss þar sem 8 af tengjunum eru með innbyggðu PoE+ – hentar því einstaklega vel fyrir myndavélar, access punkta og annan PoE-búnað. Til viðbótar eru 8 venjuleg Gigabit Ethernet tengi og tvö 1G SFP tengi sem henta til dæmis fyrir ljósleiðaratengingu milli hæða eða sem tenging við annan sviss.

Svissinn er algjörlega viftulaus og því hljóðlaus í rekstri, sem gerir hann að góðum kosti í rýmum þar sem hávaði skiptir máli. Hann er stýrður í gegnum UniFi Network hugbúnaðinn, samhliða öðrum UniFi-búnaði, og er með litlum snertiskjá framan á sem sýnir stöðu og helstu upplýsingar í fljótu bragði.

Helstu eiginleikar:

  • 8x PoE+ tengi, samtals 42W: Knýr myndavélar, access punkta og annan PoE-búnað beint í gegnum netsnúruna, allt að 32W á hvert tengi.
  • 8x auka Gigabit Ethernet tengi og 2x 1G SFP: Fyrir hefðbundnar tengingar auk uppfærslutengingar eða ljósleiðara milli svissa.
  • Hljóðlaus og viftulaus: Engin virk kæling – hentar vel í skrifstofur og önnur rými þar sem hávaði skiptir máli.
  • Miðstýrð umsjón: Fullur stuðningur við UniFi Network hugbúnaðinn, VLAN-stuðningur og innbyggður snertiskjár.

2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA

Nánari upplýsingar á heimasíðu Ubiquiti

Gerð Stýrður sviss (switch) – Layer 2, 16 porta GbE með PoE+
Tengi 16x Gigabit Ethernet (8x PoE+), 2x 1G SFP
PoE afl Allt að 42W samtals (PoE+, allt að 32W á tengi)
Skiptigeta 36 Gbps (18 Gbps non-blocking)
VLAN stuðningur Allt að 1.000 VLAN
Umsjón UniFi Network hugbúnaður (útgáfa 7.2.94 eða nýrri)
Aflnotkun 18W án PoE – allt að 60W með PoE útgangi
Festing 1U rekkafesting (400–1200 mm rekkadýpt)
Mál (L x B x H) 442 x 200 x 44 mm
Þyngd 2,8 kg
Rekstrarhitastig -5°C til 40°C
Ábyrgð 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni

 


Við mælum með