Sony WH-1000XM6 – Þráðlaus heyrnartól

  • 62.900 kr
  • Kynningarverð – gildir út 1. desember

Afhendingartími 5-7 virkir dagar

Sony WH-1000XM6 eru nýjustu flaggskipsheyrnartólin frá Sony og taka við af hinum vinsælu WH-1000XM5. Nýr QN3 örgjörvi, sjö sinnum hraðari en sá sem var í XM5, stýrir 12 hljóðnemum og lagar hávaðadeyfinguna stöðugt að umhverfinu. Útkoman er ein besta hávaðadeyfing sem völ er á, hvort sem þú ert í flugvél, strætó eða á opnu skrifstofurými.

Hljómurinn er stilltur í samstarfi við þekkta hljóðblöndunarmenn og 30 mm hátalarar skila tærum og jöfnum hljómi. Rafhlaðan endist í allt að 30 klukkustundir með hávaðadeyfingu og þriggja mínútna hleðsla dugar í allt að þrjá tíma. Heyrnartólin leggjast nú saman á ný og koma í nettri burðartösku, svo auðvelt er að taka þau með í ferðalagið.

Helstu eiginleikar:

  • Öflug hávaðadeyfing: QN3 örgjörvi og 12 hljóðnemar sem laga deyfinguna sjálfkrafa að umhverfinu.
  • Vandaður hljómur: 30 mm hátalarar, LDAC fyrir háupplausnarhljóð og DSEE Extreme sem bætir þjappaða tónlist.
  • Allt að 40 klst. rafhlaða: 30 klst. með hávaðadeyfingu, 40 klst. án – og 3 mín. hleðsla gefur allt að 3 klst.
  • Skýr símtöl: Hljóðnemarnir sía burt vind og umhverfishljóð svo röddin þín heyrist vel.
  • Tvö tæki í einu: Tengist síma og tölvu samtímis og skiptir sjálfkrafa á milli.
  • Létt og samanbrjótanleg: Aðeins 254 g, leggjast saman og koma í burðartösku.

2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA

Nánari upplýsingar á heimasíðu Sony

Gerð Þráðlaus heyrnartól – yfir eyra (over-ear), lokuð, með virkri hávaðadeyfingu
Vörunúmer WH1000XM6B.CE7
Örgjörvi HD Noise Cancelling Processor QN3
Hljóðnemar 12 (fyrir hávaðadeyfingu og símtöl)
Hátalarar 30 mm, með koltrefjahvolfi og neodymium seglum
Tíðnisvið 4 Hz–40.000 Hz
Tenging Bluetooth 5.3 (tengist tveimur tækjum í einu) og 3,5 mm snúra
Bluetooth kóðar SBC, AAC, LDAC, LC3
Drægni U.þ.b. 10 m
Rafhlaða Allt að 30 klst. með hávaðadeyfingu / allt að 40 klst. án
Hraðhleðsla 3 mín. hleðsla gefur allt að 3 klst. spilun (með USB-PD hleðslutæki)
Hleðslutími U.þ.b. 3,5 klst. (USB-C)
Stjórnun Snertistjórnun á heyrnartólunum og Sony Sound Connect app
Í kassanum Heyrnartól, burðartaska, USB-C snúra, 3,5 mm hljóðsnúra
Þyngd U.þ.b. 254 g
Litur Svartur
Ábyrgð 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni

Við mælum með