Samsung Odyssey G5. 27" 2K 180Hz IPS Tölvuskjár
Odyssey G5 (G50D) frá Samsung er 27" leikjaskjár með QHD upplausn (2560x1440) og IPS panel sem skilar skörpum myndgæðum og góðum litum frá öllum sjónarhornum. 180Hz endurnýjunartíðni og 1 ms svartími gera hreyfingar mjúkar og skýrar, hvort sem um er að ræða hraða skotleiki eða daglega vinnu.
Skjárinn styður bæði AMD FreeSync og NVIDIA G-Sync Compatible, svo myndin helst laus við rifur og hökt óháð skjákorti. Fóturinn er stillanlegur á alla vegu og skjárinn hentar því jafnt á skrifborðið heima sem í vinnunni.
Helstu eiginleikar:
- QHD á 27": 2560x1440 upplausn gefur skarpari mynd og meira vinnupláss en hefðbundinn Full HD skjár.
- 180Hz og 1 ms: Mjúk og hröð mynd sem nýtist vel í leikjum.
- IPS með HDR400: 99% sRGB litaþekja og 350 cd/m² birta.
- Fullstillanlegur fótur: Hæðarstilling (120 mm), halli, snúningur og hægt að snúa skjánum á rönd. Einnig VESA 100x100 festing.
3 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu Samsung
| Stærð | 27" (16:9), flatur |
| Upplausn | 2560x1440 (QHD) |
| Panell | IPS |
| Endurnýjunartíðni | Allt að 180Hz |
| Svartími | 1 ms (GtG) |
| Birta / skerpa | 350 cd/m² / 1000:1 |
| HDR | VESA DisplayHDR 400 |
| Litaþekja | 99% sRGB |
| Samstilling | AMD FreeSync, NVIDIA G-Sync Compatible |
| Tengi | 1x DisplayPort, 1x HDMI, heyrnartólatengi |
| Stillingar | Hæð 120 mm, halli -2°–25°, snúningur ±30°, á rönd ±92° |
| VESA | 100x100 |
| Mál með fæti (B x H x D) | 613 x 552 x 263,5 mm |
| Þyngd | 6,4 kg með fæti / 3,4 kg án |
| Í kassanum | Rafmagnssnúra og DisplayPort snúra |
| Ábyrgð | 3 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |