Phanteks Evolv X2 – Turnkassi, svartur, tempered gler, D-RGB lýsing
Phanteks Evolv X2 er glæsilegur turnkassi úr burstuðu áli og gleri á framhlið og hlið. Kassinn stendur á upphækkuðum fótum svo skjákortið virðist nánast svífa inni í honum.
Hann er hannaður fyrir lóðrétt loftflæði þar sem köldu lofti er blásið inn að neðan og heitu lofti út um hallandi topp. Þrír D-RGB LED borðar eru forsettir í kassann.
Helstu eiginleikar:
- Ál og gler: Burstaðar álplötur og gler á framhlið og hlið.
- Lóðrétt loftflæði: Kalt loft inn í botni og heitt loft út um toppinn – pláss fyrir 7x 120 mm viftur.
- D-RGB lýsing: Þrír forsettir D-RGB LED borðar (tengjast A-RGB á móðurborði eða Phanteks stýringu).
- Falin kapalumsjón: Stór hurð á bakhlið felur kapla og styður Rear-Connect móðurborð.
5 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu Phanteks
| Gerð | Mid-tower turnkassi úr áli með gleri á framhlið og hlið |
| Móðurborð | E-ATX (allt að 280 mm), ATX, Micro-ATX, Mini-ITX (einnig Rear-Connect borð) |
| Mál (L x B x H) | 454 x 228 x 588 mm |
| Þyngd | 14,2 kg |
| Diskapláss | 5x 2,5" + 1x 3,5" eða 3x 2,5" + 2x 3,5" |
| Tengi að framan | 1x USB-C 3.2 Gen 2x2, 2x USB 3.0, hljóðtengi (combo) |
| Viftustæði | Toppur 3x 120 mm, botn 3x 120 mm, aftan 1x 120 mm |
| Vatnskæling | Toppur allt að 360 mm |
| Skjákort | Allt að 380 mm |
| Örgjörvakæling | Allt að 170 mm á hæð |
| Aflgjafi | ATX, allt að 250 mm |
| Ábyrgð | 5 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |
