Patriot 32GB kit (2x16GB) DDR5 6000MHz, Viper Venom CL30, lífstíðarábyrgð
Patriot Viper Venom 32GB er DDR5 vinnsluminnissett fyrir borðtölvur, tveir 16GB kubbar sem keyra á 6000 MT/s með CL30 biðtíma. Þetta er ein besta samsetning hraða og biðtíma fyrir AMD Ryzen 7000/9000 á AM5, og hentar einnig vel í nýlegar Intel-tölvur.
Uppgefinn hraði næst með því að virkja XMP eða EXPO prófíl í BIOS/UEFI móðurborðsins – engar handvirkar stillingar þarf.
Helstu eiginleikar:
- 32 GB (2x 16 GB) DDR5: Tvírása (dual-channel) sett sem hentar vel í leiki og aðra vinnslu.
- 6000 MT/s og CL30: Lágur biðtími sem skilar sér í betri afköstum í leikjum.
- Intel XMP 3.0 og AMD EXPO: Einföld stilling á uppgefnum hraða bæði á Intel og AMD.
- Kæliplata: Álkæliplötur sem halda kubbunum köldum undir álagi.
LÍFSTÍÐARÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu Patriot
| Gerð | Vinnsluminni fyrir borðtölvur – DDR5 UDIMM (288 pinna) |
| Stærð | 32 GB (2x 16 GB) |
| Hraði | 6000 MT/s (PC5-48000) |
| Biðtími (timings) | CL30-40-40-76 |
| Spenna | 1,35V |
| Samhæfni | Móðurborð með DDR5 stuðningi (t.d. AMD AM5, Intel LGA 1700 / 1851) |
| Ábyrgð | Lífstíðarábyrgð hjá Tölvutækni |