Logitech MX Master 4 – Þráðlaus mús

  • 22.900 kr

Afhendingartími 5-7 virkir dagar

Hér er hún mætt, nýjasta kynslóðin af líklega vinsælustu og fullkomnustu skrifstofumús í heimi: Logitech MX Master 4 for Business. Þessi útgáfa er sérstaklega gerð fyrir atvinnulífið og er hönnuð til að auka framleiðni, þægindi og öryggi. Nýja kynslóðin fleytir vinnunni á hærra plan með innbyggðri haptískri svörun (Haptic Feedback) og glænýrri flýtivalmynd, ásamt því að vera gerð úr enn slitsterkara efni.

Helstu nýjungar og eiginleikar:

  • Haptísk svörun (Haptic Feedback): MX Master 4 er fyrsta músin sem styður "Advanced Haptics" kerfið í Windows 11. Hún gefur þér fislétta og skýra viðbragðstilfinningu (titring) þegar þú smellir gluggum saman, raðar hlutum upp eða færir skrár. Þú finnur vinnuna þína!
  • Actions Ring valmynd: Nýr eiginleiki sem birtir helstu verkfærin og flýtivísana þína í hring beint við músarbendilinn á skjánum. Þetta sparar þér dýrmætan tíma og handahreyfingar.
  • MagSpeed & Quiet Clicks: Segulknúið skrunhjól sem getur farið í gegnum 1.000 línur af Excel eða kóða á einni sekúndu í algjörri þögn. Hnapparnir sjálfir nýta "Quiet Click" tækni sem minnkar smellhljóð um 90%.
  • 8.000 DPI skynjari (virkar á gleri): Ofurnákvæmur Darkfield skynjari sem hægt er að stilla allt að 8.000 DPI. Hann nemur hreyfingar á nánast hvaða yfirborði sem er, jafnvel á þykkum glerborðum.
  • Logi Bolt (Business): Býður upp á allt að tvisvar sinnum betri og sterkari þráðlausa tengingu með dulkóðun, sem gerir vélina ónæmari fyrir truflunum í rýmum þar sem mörg Bluetooth tæki eru í gangi. Einnig er hægt að nota hefðbundið Bluetooth.
  • Allt að 70 daga rafhlaða: Músin endist ótrúlega lengi, en hraðhleðsla í gegnum USB-C gefur þér auka 3 klukkustunda notkun á aðeins einni mínútu.

2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA

Nánari upplýsingar á heimasíðu Logitech

Gerð Ergónómísk hægrihandar skrifstofumús (Fyrirtækjaútgáfa)
Skynjari Darkfield High Precision (Stækkanlegt frá 200 í 8.000 DPI)
Haptísk svörun Innbyggð snertisvörun (Styður native Windows 11 Advanced Haptics)
Tengingar Logi Bolt USB móttakari og Bluetooth Low Energy
Easy-Switch Hægt að para við og hoppa á milli 3 tölva með einum takka
Rafhlaða Allt að 70 daga ending / USB-C hleðsla
Hugbúnaður Styður Logi Options+ (Fyrir Actions Ring og sérsnið)
Litur & efni Graphite (Svart/Dökkgrátt) með aukinni blettavörn (Stain Resistance)
Ábyrgð 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni

 


Við mælum með