Lenovo ThinkPad T14 14" U5-238V 32GB 512GB WIFI7 W11Pro

  • 319.900 kr

Afhendingartími 1-3 virkir dagar

Lenovo ThinkPad T14 er algjör vinnuhestur sem er hannaður til að þola álagið í krefjandi fyrirtækja- og námsumhverfi. Þessi útgáfa er gífurlega vel búin með nýjustu kynslóð af Intel Core Ultra 5 örgjörva, 32GB af vinnsluminni og leifturhröðu Wi-Fi 7 netkorti. Hún er fullkomin fyrir þá sem vinna mikið í stórum skjölum, flókinni fjölverkavinnslu og vilja áreiðanlega vél sem endist árum saman.

Helstu eiginleikar:

  • Kraftur og minni: Nýr Intel Core Ultra 5 örgjörvi ásamt 32 GB af vinnsluminni og 512 GB hröðum SSD diski. Vélin ræsir sig hratt, keyrir mörg forrit í einu og hikstar ekki.
  • WUXGA Skjár: 14 tommu skjár með 16:10 hlutföllum (1920 x 1200 upplausn). Þessi hlutföll bjóða upp á meira lóðrétt pláss en hefðbundnir skjáir, sem er frábært til að lesa skjöl og vinna í Excel.
  • Framtíðar nettenging (Wi-Fi 7): Búin næstu kynslóð af þráðlausu neti sem skilar mun meiri hraða, minni seinkun og stöðugra sambandi á fjölmennum vinnustöðum eða skólum.
  • ThinkPad gæði: Heimsþekkt gæði, margverðlaunað og þægilegt lyklaborð og endingargóð hönnun sem þolir hnjask og dagleg ferðalög milli funda.
  • Windows 11 Pro: Tilbúin fyrir fyrirtækjanet með innbyggðum öryggiseiginleikum og bitlocker dulkóðun.

2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA

Gerð Lenovo ThinkPad T14 (Fyrirtækjatölva)
Skjár 14" WUXGA (1920 x 1200) Antiglare / Mattur
Örgjörvi (CPU) Intel Core Ultra 5 (238V)
Vinnsluminni (RAM) 32 GB
Geymslupláss (SSD) 512 GB NVMe SSD
Netkort Wi-Fi 7 og Bluetooth
Lyklaborð Íslenskt með baklýsingu
Stýrikerfi Windows 11 Pro
Ábyrgð 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni

Við mælum með