Intel Core Ultra 7 270K Plus 5.5GHz Boost, 24 kjarna, 24þræðir, 36MB í flýtiminni
Intel Core Ultra 7 270K Plus er 24 kjarna örgjörvi úr uppfærðri Core Ultra 200S línu (Arrow Lake Refresh) fyrir LGA 1851 sökkulinn. Hann er með 8 afkastakjarna (P-cores) og 16 sparneytna kjarna (E-cores), 36MB flýtiminni og allt að 5,5 GHz klukkuhraða, og ræður jafnt við kröfuharða tölvuleiki og þunga vinnslu.
Örgjörvinn er með innbyggða Intel Graphics skjástýringu og styður hraðara DDR5 vinnsluminni en fyrri útgáfur, allt að 7200 MHz. Hann er 125W en getur farið upp í 250W undir álagi, og kæling fylgir ekki með – mælt er með öflugri vatnskælingu.
Helstu eiginleikar:
- 24 kjarnar / 24 þræðir: 8 afkastakjarnar og 16 sparneytnir kjarnar fyrir leiki, myndvinnslu og aðra þunga vinnslu.
- Allt að 5,5 GHz: Grunnhraði 3,7 GHz og opinn fyrir yfirklukkun (K-útgáfa).
- 36MB flýtiminni: Meira flýtiminni en í 265K, sem skilar sér í betri afköstum í leikjum.
- DDR5-7200 og PCIe 5.0: Styður hraðasta vinnsluminni og nýjustu skjákort og SSD diska.
3 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu Intel
| Sökkull | LGA 1851 (Intel 800-kubbasett) |
| Kjarnar / þræðir | 24 (8P + 16E) / 24 |
| Klukkuhraði | 3,7 GHz grunnhraði, allt að 5,5 GHz |
| Flýtiminni | 36MB Intel Smart Cache |
| Hönnun | Arrow Lake Refresh, 3 nm |
| Aflnotkun | 125W grunnafl, allt að 250W |
| Vinnsluminni | DDR5, allt að 7200 MHz |
| PCIe | PCIe 5.0 og 4.0 |
| Skjástýring | Intel Graphics (innbyggð) |
| Kæling | Fylgir ekki með |
| Ábyrgð | 3 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |