Intel Core i7-14700K 5.6GHz Turbo, 20 kjarna, 28 þræðir, 33MB í flýtiminni, 3 ára ábyrgð

Intel Core i7-14700K 5.6GHz Turbo, 20 kjarna, 28 þræðir, 33MB í flýtiminni, 3 ára ábyrgð

  • 62.900 kr

Afhendingartími 5-7 virkir dagar

Intel Core i7-14700K er 20 kjarna örgjörvi úr 14. kynslóð Intel Core fyrir LGA 1700 sökkulinn. Hann er með 8 afkastakjarna (P-cores) og 12 sparneytna kjarna (E-cores) og allt að 5,6 GHz klukkuhraða, og ræður jafnt við kröfuharða tölvuleiki og þunga vinnslu eins og myndvinnslu og streymi.

Örgjörvinn er með innbyggða Intel UHD Graphics 770 skjástýringu. Hann er 125W en getur farið upp í 253W undir álagi, og kæling fylgir ekki með – mælt er með öflugri vatnskælingu eða stórri loftkælingu.

Helstu eiginleikar:

  • 20 kjarnar / 28 þræðir: 8 afkastakjarnar og 12 sparneytnir kjarnar fyrir leiki, myndvinnslu og aðra þunga vinnslu.
  • Allt að 5,6 GHz: Grunnhraði 3,4 GHz og opinn fyrir yfirklukkun (K-útgáfa).
  • Innbyggð skjástýring: Intel UHD Graphics 770 – hægt að tengja skjá beint við móðurborðið.
  • DDR4 og DDR5: Styður bæði DDR4-3200 og DDR5-5600 vinnsluminni.

3 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA

Nánari upplýsingar á heimasíðu Intel

Sökkull LGA 1700
Kjarnar / þræðir 20 (8P + 12E) / 28
Klukkuhraði 3,4 GHz grunnhraði, allt að 5,6 GHz
Flýtiminni 33MB Intel Smart Cache
Aflnotkun 125W grunnafl, allt að 253W
Vinnsluminni DDR5-5600 / DDR4-3200, allt að 192GB
PCIe PCIe 5.0 og 4.0
Skjástýring Intel UHD Graphics 770 (innbyggð)
Kæling Fylgir ekki með
Ábyrgð 3 ára ábyrgð hjá Tölvutækni

Við mælum með