HyperX Cloud III – Þægileg leikjaheyrnartól
HyperX Cloud III er arftaki hinna vinsælu Cloud II heyrnartóla, sem lengi hafa verið þkkt fyrir þægindi, góðan hljóm og endingu. Minnissvampur í spöng og eyrnapúðum, klæddur mjúku gervileðri, gerir þau þægileg í löngum leikjalotum, og grindin er úr áli. 53 mm hátalararnir eru hallaðir og stilltir upp á nýtt af hljóðverkfræðingum HyperX fyrir skýran og líflegan hljóm.
Heyrnartólin tengjast með 3,5 mm snúru eða USB-C/USB-A, og virka því með PC, Mac, PlayStation, Xbox, Nintendo Switch og síma. Í gegnum USB fylgir ævilangt leyfi fyrir DTS Headphone:X umhverfishljóði. Losanlegi 10 mm hljóðneminn er með hávaðadeyfingu og ljósi sem sýnir hvenær slökkt er á honum, og hljóðstyrk og slökkt á hljóðnema er stjórnað beint á heyrnartólunum.
Helstu eiginleikar:
- Hin þekktu Cloud þægindi: Minnissvampur í spöng og eyrnapúðum, klæddur gervileðri, og sterk álgrind.
- Hallaðir 53 mm hátalarar: Stilltir af HyperX fyrir skýran og líflegan hljóm í leikjum.
- DTS Headphone:X umhverfishljóð: Nákvæm staðsetning hljóða í leikjum við USB tengingu.
- Losanlegur 10 mm hljóðnemi: Hávaðadeyfing og ljós sem sýnir þegar slökkt er á hljóðnemanum.
- Stjórntakkar á heyrnartólum: Hljóðstyrkshjól og takki til að slökkva á hljóðnema – engin þörf á að fara í valmyndir.
- Víðtæk samhæfni: USB-C, USB-A og 3,5 mm tengi – virkar með PC, Mac, leikjatölvum og síma.
2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu HyperX
| Gerð | Leikjaheyrnartól með snúru – yfir eyra (over-ear), lokuð |
| Vörunúmer | 727A8AA |
| Tenging | 3,5 mm (4-póla) og USB-C hljóðkort með USB-C í USB-A millistykki |
| Hátalarar | 53 mm, hallaðir, með neodymium seglum |
| Tíðnisvið | 10 Hz–21.000 Hz |
| Umhverfishljóð | DTS Headphone:X Spatial Audio (við USB tengingu) |
| Hljóðnemi | Losanlegur 10 mm, einstefnu með hávaðadeyfingu, ljós þegar slökkt er á hljóðnema |
| Stjórnun | Hljóðstyrkshjól og hljóðnematakki á heyrnartólum |
| Efni | Álgrind, minnissvampur með gervileðri |
| Samhæfni | PC, Mac, PlayStation 5/4, Xbox Series X|S, Xbox One, Nintendo Switch og sími |
| Í kassanum | Heyrnartól, losanlegur hljóðnemi, USB hljóðkort, USB-C í USB-A millistykki, flýtileiðbeiningar |
| Stærð (B x D x H) | 155 x 86,7 x 190 mm |
| Þyngd | 308 g / 320 g með hljóðnema |
| Litur | Svartur |
| Ábyrgð | 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |