G.SKILL RIPJAWS V 32GB kit (2x16GB) 3600MHz DDR4, lífstíðarábyrgð
G.SKILL Ripjaws V 32GB er DDR4 vinnsluminnissett fyrir borðtölvur, tveir 16GB kubbar sem keyra á 3600 MHz með CL18 biðtíma. 32GB er gott magn fyrir leiki, myndvinnslu og aðra vinnslu á AMD AM4 og Intel DDR4 móðurborðum.
Uppgefinn hraði næst með því að virkja XMP prófíl í BIOS/UEFI móðurborðsins. Kubbarnir virka einnig á lægri hraða, t.d. 3200 og 2666 MHz.
Helstu eiginleikar:
- 32 GB (2x 16 GB) DDR4: Tvírása (dual-channel) sett sem nýtir minnisbandbreidd móðurborðsins til fulls.
- 3600 MHz og CL18: Hraði sem hentar sérstaklega vel AMD Ryzen og nýlegum Intel örgjörvum.
- Intel XMP 2.0: Einföld stilling á uppgefnum hraða beint í BIOS.
- Kæliplata: Álkæliplötur sem halda kubbunum köldum undir álagi.
LÍFSTÍÐARÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu G.SKILL
| Gerð | Vinnsluminni fyrir borðtölvur – DDR4 DIMM (288 pinna) |
| Stærð | 32 GB (2x 16 GB) |
| Hraði | 3600 MT/s (PC4-28800) |
| Biðtími (timings) | CL18 |
| Spenna | 1,35V (XMP) / 1,2V (sjálfgefið) |
| Samhæfni | Móðurborð með DDR4 stuðningi (t.d. AMD AM4, Intel LGA 1200 / 1700) |
| Ábyrgð | Lífstíðarábyrgð hjá Tölvutækni |