be quiet! Pure Rock 3 Black – Hljóðlát 120 mm loftkæling
be quiet! Pure Rock 3 Black – Hljóðlát 120 mm loftkæling fyrir örgjörva
Pure Rock 3 Black frá be quiet! er fyrirferðarlítil en öflug loftkæling sem hentar frábærlega í venjulegar leikja- og heimilistölvur. Kælingin ræður við allt að 190W (TDP) og hentar því ve flestum Intel Core i5/i7 og AMD Ryzen 5/7 örgjörvum. Fjórar svartar 6 mm hitapípur með beinni snertingu (HDT) leiða varmann hratt frá örgjörvanum.
Grannvaxin hönnun tryggir að kælingin rekist hvorki á hátt vinnsluminni né VRM-kæla á móðurborðinu, sem gerir hana að góðum kosti í litlum turnkössum. Kælingin er fljótleg í uppsetningu og AM5 notendur njóta að auki hliðraðrar (offset) festingar sem miðjar hitapípurnar beint yfir heitasta punkt örgjörvans.
Helstu eiginleikar:
- Allt að 190W TDP: Næg kæling fyrir flestar Intel og AMD borðtölvur – þó ekki hugsuð fyrir aflmestu flaggskipsörgjörvana.
- 4x 6 mm hitapípur (HDT): Bein snerting við örgjörvann tryggir hraðan og skilvirka kælingu
- Pure Wings 3 120 mm PWM vifta: Sérhönnuð blöð hámarka loftflæði (101,2 m³/klst) á meðan hávaði helst í lágmarki – frá 12,4 dB(A) upp í 31,2 dB(A) á fullum hraða.
- Fyrirferðarlítil: Aðeins 71 x 124 x 154 mm og 570 g að þyngd – passar auðveldlega með háu vinnsluminni og í litlum turnkössum.
3 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu be quiet!
| Gerð | Loftkæling fyrir örgjörva – Single-tower, 120 mm |
| Hentar fyrir (TDP) | Allt að 190W |
| Sökkulstuðningur Intel | LGA 1851 / 1700 / 1200 / 1150 / 1151 / 1155 |
| Sökkulstuðningur AMD | AM5 / AM4 |
| Hitapípur | 4x 6 mm, bein snerting (HDT) |
| Vifta | Pure Wings 3, 120 mm PWM, allt að 2000 sn./mín. |
| Hávaði | 12,4 / 24,4 / 31,2 dB(A) við 50/75/100% hraða |
| Loftflæði | 101,2 m³/klst (59,6 CFM) |
| Tengi | 4-pinna PWM |
| Mál (L x B x H) | 71 x 124 x 154 mm |
| Þyngd | 570 g |
| Ábyrgð | 3 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |