Arctic MX-6 ULTIMATE Performance hitaleiðandi kælikrem 0,8 grömm
Arctic MX-6 er kælikrem í hæsta gæðaflokki sem byggir á hinu vinsæla MX-4 en skilar um 20% lægri varmamótstöðu. Kremið hentar jafnt á örgjörva í borðtölvum og fartölvum sem og beint á kjarna (direct-die), t.d. á skjákortum og leikjatölvum. Það nær fullum afköstum strax eftir ásetningu og þornar hvorki né lekur, svo afköstin haldast stöðug til lengri tíma.
Þessi 0,8 g pakkning er hentug þegar skipta þarf um kælikrem á einum örgjörva eða skjákorti. MX-6 er nokkuð þykkt og er því ekki smurt út með spaða – þrýstingur kælingarinnar dreifir því jafnt.
Helstu eiginleikar:
- Um 20% betri afköst en MX-4: Lægri varmamótstaða skilar lægra hitastigi milli örgjörva og kælingar.
- Hvorki rafleiðandi né rýmdarleiðandi: Engin hætta á skammhlaupi og inniheldur engan fljótandi málm.
- Endingargott: Þornar ekki og þolir „pump-out" áhrif – hentar því einnig beint á kjarna skjákorta og leikjatölva.
- Fullum afköstum strax: Enginn innbrennslutími – kremið skilar fullri kælingu um leið og kælingin er komin á.
2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu Arctic
| Gerð | Kælikrem (thermal paste) fyrir örgjörva og skjákort |
| Magn | 0,8 g |
| Seigja | 45.000 poise |
| Hitaþol | -50°C til 150°C í samfelldri notkun |
| Rafleiðni | Hvorki rafleiðandi né rýmdarleiðandi |
| Litur | Grár |
| Ábyrgð | 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |