Arctic MX-6 4g – Öflugt kælikrem með 6x MX Cleaner hreinsiklútum

Arctic MX-6 4g – Öflugt kælikrem með 6x MX Cleaner hreinsiklútum

  • 3.490 kr

Afhendingartími 5-7 virkir dagar

Arctic MX-6 er kælikrem í hæsta gæðaflokki sem byggir á hinu vinsæla MX-4 en skilar um 20% lægri varmamótstöðu. Það nær fullum afköstum strax eftir ásetningu og þornar hvorki né lekur, svo afköstin haldast stöðug til lengri tíma.

Í pakkanum fylgja 6 MX Cleaner hreinsiklútar sem fjarlægja gamalt kælikrem á fljótlegan og hreinlegan hátt. Klútarnir eru vættir í limonene, náttúrulegu efni úr sítrusolíu sem er að fullu niðurbrjótanlegt. MX-6 er nokkuð þykkt og er því ekki smurt út með spaða – þrýstingur kælingarinnar dreifir því jafnt.

Helstu eiginleikar:

  • Um 20% betri afköst en MX-4: Lægri varmamótstaða skilar lægra hitastigi milli örgjörva og kælingar.
  • Hvorki rafleiðandi né rýmdarleiðandi: Engin hætta á skammhlaupi og inniheldur engan fljótandi málm.
  • Endingargott: Þornar ekki og þolir „pump-out" áhrif – hentar því einnig beint á kjarna skjákorta og leikjatölva.
  • 6x MX Cleaner hreinsiklútar fylgja: Einföld og leifalaus hreinsun á gömlu kælikremi fyrir ásetningu.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Arctic

Gerð Kælikrem (thermal paste) fyrir örgjörva og skjákort
Magn 4 g í endurlokanlegri sprautu
Í pakkanum MX-6 kælikrem (4 g) og 6x MX Cleaner hreinsiklútar
Hitaþol -50°C til 150°C í samfelldri notkun

Við mælum með