LG 27" MS550 100Hz FHD IPS tölvuskjár
LG 27MS550-B er 27" Full HD skjár með IPS skjáfleti og 100 Hz endurnýjunarhraða. IPS skilar jöfnum og réttum litum frá öllum sjónarhornum og 100 Hz gerir hreyfingar á skjánum mýkri en á hefðbundnum 60 Hz skjá, hvort sem verið er að fletta í gegnum skjöl, vafra eða spila leiki.
Skjárinn hentar vel sem traustur vinnuskjár heima eða á skrifstofunni. Fóturinn er hæðarstillanlegur, innbyggðir hátalarar spara pláss á borðinu og tvö HDMI tengi gera auðvelt að tengja t.d. bæði fartölvu og leikjatölvu við sama skjá.
Helstu eiginleikar:
- IPS og 100 Hz: Jafnir litir frá öllum sjónarhornum og mýkri hreyfing en á 60 Hz skjá, með 5 ms viðbragðstíma.
- Hæðarstillanlegur fótur: Hægt að stilla hæð og halla svo skjárinn sitji rétt í augnhæð yfir langan vinnudag.
- Augnvænn: Flicker Safe kemur í veg fyrir flökt og Reader Mode dregur úr bláu ljósi við lestur.
- Innbyggðir hátalarar: 2x 2W hátalarar og heyrnartólatengi, svo ekki er þörf á aukahátölurum fyrir fundi og myndbönd.
2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu LG
| Stærð | 27" (68,6 cm), flatur |
| Upplausn | 1920×1080 (Full HD), 82 PPI |
| Skjáflötur | IPS, 178°/178° sjónarhorn |
| Endurnýjunarhraði | 100 Hz |
| Viðbragðstími | 5 ms (GtG) |
| Birta / skerpa | 250 cd/m² / 1000:1 |
| Litasvið | NTSC 72% |
| Myndtengi | 2x HDMI |
| Hljóð | 2x 2W hátalarar, 3,5 mm heyrnartólatengi |
| Stillingar á fæti | Hæð og halli |
| VESA festing | 75×75 mm |
| Augnvernd | Flicker Safe, Reader Mode |
| Leikjaeiginleikar | Dynamic Action Sync, Black Stabilizer, Crosshair |
| Þyngd | 3,9 kg með fæti |
| Ábyrgð | 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |