Apple Magic mouse - Hvít, USB-C
Apple Magic Mouse er þráðlaus mús með Multi-Touch yfirborði sem virkar eins og lítill snertiflötur – hægt er að skruna og strjúka á milli síðna með fingrinum í stað skrunhjóls. Hún hefur haldið sömu stílhreinu lögun í gegnum árin og fellur vel að öðrum Apple búnaði.
Músin parast sjálfkrafa við Mac og er nú hlaðin með USB-C. Hleðslutengið er undir músinni, svo ekki er hægt að nota hana á meðan hún er í hleðslu – en rafhlaðan endist í um mánuð og hleðst hratt.
Helstu eiginleikar:
- Multi-Touch yfirborð: Skrunað og strokið á milli síðna og forrita beint á yfirborði músarinnar.
- Sjálfvirk pörun við Mac: Parast sjálfkrafa þegar hún er tengd við Mac með USB-C snúru.
- USB-C hleðsla: Rafhlaðan endist í um mánuð og hleðst hratt.
- Stílhrein og létt: Aðeins 99 g og lágbyggð – passar vel við Mac og iPad.
2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu Apple
| Gerð | Þráðlaus mús með Multi-Touch yfirborði |
| Tenging | Bluetooth og USB-C (hleðsla og pörun) |
| Rafhlaða | Innbyggð, endist í um mánuð eða lengur |
| Hleðsla | USB-C tengi undir músinni |
| Samhæfni | Mac og iPad |
| Mál (L x B x H) | 113,5 x 57,1 x 21,6 mm |
| Þyngd | 99 g |
| Litur | Hvítur |
| Ábyrgð | 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |