Intel Core i7-14700KF 5.6GHz Turbo, 20 kjarna, 28 þræðir, 33MB í flýtiminni, 3 ára ábyrgð
Intel Core i7-14700KF er 20 kjarna örgjörvi úr 14. kynslóð Intel Core fyrir LGA 1700 sökkulinn. Hann er með 8 afkastakjarna (P-cores) og 12 sparneytna kjarna (E-cores) og allt að 5,6 GHz klukkuhraða, og ræður jafnt við kröfuharða tölvuleiki og þunga vinnslu eins og myndvinnslu og streymi.
Örgjörvinn er ekki með innbyggða skjástýringu og því þarf sér skjákort. Hann er 125W en getur farið upp í 253W undir álagi, og kæling fylgir ekki með – mælt er með öflugri vatnskælingu eða stórri loftkælingu.
Helstu eiginleikar:
- 20 kjarnar / 28 þræðir: 8 afkastakjarnar og 12 sparneytnir kjarnar fyrir leiki, myndvinnslu og aðra þunga vinnslu.
- Allt að 5,6 GHz: Grunnhraði 3,4 GHz og opinn fyrir yfirklukkun (K-útgáfa).
- 33MB flýtiminni: Intel Smart Cache sem skilar sér í betri afköstum í leikjum.
- DDR4 og DDR5: Styður bæði DDR4-3200 og DDR5-5600 vinnsluminni.
3 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu Intel
| Sökkull | LGA 1700 |
| Kjarnar / þræðir | 20 (8P + 12E) / 28 |
| Klukkuhraði | 3,4 GHz grunnhraði, allt að 5,6 GHz |
| Flýtiminni | 33MB Intel Smart Cache |
| Aflnotkun | 125W grunnafl, allt að 253W |
| Vinnsluminni | DDR5-5600 / DDR4-3200, allt að 192GB |
| PCIe | PCIe 5.0 og 4.0 |
| Skjástýring | Engin – sér skjákort þarf |
| Kæling | Fylgir ekki með |
| Ábyrgð | 3 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |