AMD Ryzen 5 7600X 5.3GHz Boost, 6 kjarna, 12 þræðir, 32MB í flýtiminni, 3 ára ábyrgð
AMD Ryzen 5 7600X er öflugur 6 kjarna örgjörvi á AM5 sökkulinn, byggður á Zen 4 hönnun AMD. Með 12 þráðum og allt að 5,3 GHz klukkuhraða skilar hann frábærum afköstum í tölvuleikjum og er sterkur grunnur í nýja leikjatölvu.
Örgjörvinn er með innbyggða Radeon skjástýringu, sem dugar fyrir skjámynd og almenna notkun án skjákorts. Hann er 105W og þarf því góða kælingu, sem fylgir ekki með.
Helstu eiginleikar:
- 6 kjarnar / 12 þræðir: Mikil vinnslugeta fyrir leiki og aðra vinnslu.
- Allt að 5,3 GHz: Grunnhraði 4,7 GHz og opinn fyrir yfirklukkun.
- Innbyggð Radeon skjástýring: Hægt að tengja skjá beint við móðurborðið.
- AM5, DDR5 og PCIe 5.0: Nýjasta kynslóð AMD með góða uppfærslumöguleika.
3 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu AMD
| Sökkull | AM5 |
| Kjarnar / þræðir | 6 / 12 |
| Klukkuhraði | 4,7 GHz grunnhraði, allt að 5,3 GHz |
| Flýtiminni | 32MB L3 |
| Hönnun | Zen 4, 5 nm |
| Aflnotkun (TDP) | 105W |
| Vinnsluminni | DDR5, allt að 5200 MHz |
| PCIe | PCIe 5.0 |
| Skjástýring | AMD Radeon Graphics (innbyggð) |
| Kæling | Fylgir ekki með |
| Ábyrgð | 3 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |