Ubiquiti UniFi Switch Lite 16 PoE (USW-Lite-16-PoE) – 16 porta sviss með 8x PoE+ tengjum
UniFi Switch Lite 16 PoE er stýrður 16 porta Gigabit Ethernet sviss þar sem 8 af tengjunum eru með PoE+
hentar því vel til að knýja access punkta, IP-myndavélar og annan PoE-búnað beint í gegnum netsnúruna. Svissinn hentar jafnt í heimahús, litlar skrifstofur og sem viðbót í stærri UniFi-kerfum.
Svissinn er viftulaus og því hljóðlaus í rekstri, og má setja hann á borð eða festa á vegg – veggfesting fylgir. Hann er stýrður í gegnum UniFi Network hugbúnaðinn, samhliða öðrum UniFi-búnaði, sem gerir eftirlit og stillingar einfaldar.
Helstu eiginleikar:
- 8x PoE+ tengi, samtals 45W: Knýr access punkta, myndavélar og annan PoE-búnað, allt að 30W á hvert tengi.
- 16 Gigabit Ethernet tengi: 8 PoE+ tengi og 8 hefðbundin tengi fyrir tölvur, prentara og annan nettengdan búnað.
- Hljóðlaus og viftulaus: Engin virk kæling – hentar vel í skrifstofur, heimili og önnur rými þar sem hávaði skiptir máli.
- Miðstýrð umsjón: Fullur stuðningur við UniFi Network hugbúnaðinn fyrir eftirlit, VLAN-stillingar og fjaruppfærslur.
2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu Ubiquiti
| Gerð | Stýrður sviss (switch) – Layer 2, 16 porta GbE með PoE+ |
| Tengi | 16x Gigabit Ethernet (8x PoE+) |
| PoE-afl | Allt að 45W samtals – allt að 30W á hvert PoE+ tengi |
| Skiptigeta | 32 Gbps (16 Gbps non-blocking) |
| Umsjón | UniFi Network hugbúnaður (útgáfa 7.2.94 eða nýrri) |
| Aflnotkun | 15W án PoE – innbyggður 60W aflgjafi |
| Festing | Borð eða veggur (veggfesting fylgir) |
| Mál (L x B x H) | 192 x 185 x 44 mm |
| Þyngd | 1,2 kg |
| Rekstrarhitastig | -15°C til 40°C |
| Ábyrgð | 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |