Ubiquiti UniFi Switch 48 PoE (USW-48-PoE) – 48 porta sviss með 32x PoE+ tengjum

  • 134.900 kr

Afhendingartími 5-7 virkir dagar

UniFi Switch 48 PoE er stýrður 48 porta Gigabit Ethernet sviss þar sem 32 af tengjunum eru með PoE+ hentar því vel í stærri uppsetningar þar sem knýja þarf marga access punkta, IP-myndavélar, IP-síma og annan PoE-búnað beint í gegnum netsnúruna. Til viðbótar eru 16 hefðbundin Gigabit Ethernet tengi og fjögur 1G SFP tengi sem henta til dæmis fyrir ljósleiðaratengingu milli hæða eða bygginga, eða sem tenging við annan sviss.

Svissinn er algjörlega viftulaus og því hljóðlaus í rekstri, og passar í hefðbundinn 19" rekka (1U). Hann er stýrður í gegnum UniFi Network hugbúnaðinn, samhliða öðrum UniFi-búnaði, og er með litlum snertiskjá framan á sem sýnir stöðu og helstu upplýsingar í fljótu bragði.

Helstu eiginleikar:

  • 32x PoE+ tengi, samtals 195W: Knýr fjölda access punkta, myndavéla og annars PoE-búnaðar, allt að 32W á hvert tengi.
  • 48 Gigabit Ethernet tengi og 4x 1G SFP: 32 PoE+ tengi, 16 hefðbundin tengi og SFP-tengi fyrir uppfærslutengingu eða ljósleiðara milli svissa.
  • Hljóðlaus og viftulaus: Engin virk kæling – hentar vel í skrifstofur og önnur rými þar sem hávaði skiptir máli.
  • Miðstýrð umsjón: Fullur stuðningur við UniFi Network hugbúnaðinn, VLAN-stuðningur og innbyggður snertiskjár.

2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA

Nánari upplýsingar á heimasíðu Ubiquiti

Gerð Stýrður sviss (switch) – Layer 2, 48 porta GbE með PoE+
Tengi 48x Gigabit Ethernet (32x PoE+), 4x 1G SFP
PoE-afl Allt að 195W samtals – allt að 32W á hvert PoE+ tengi
Skiptigeta 104 Gbps (52 Gbps non-blocking)
VLAN stuðningur Allt að 1.000 VLAN
Umsjón UniFi Network hugbúnaður (útgáfa 7.2.94 eða nýrri)
Aflnotkun Allt að 45W án PoE – innbyggður 240W aflgjafi
Festing 1U rekkafesting (festingar fylgja)
Mál (L x B x H) 442 x 285 x 44 mm
Þyngd 4,5 kg (4,6 kg með festingum)
Rekstrarhitastig -5°C til 40°C
Ábyrgð 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni

Við mælum með