Ubiquiti UniFi PoE++ Adapter 60W (U-PoE++) – PoE++ spennugjafi fyrir aflfrekan netbúnað

  • 6.490 kr

Afhendingartími 1-3 virkir dagar

UniFi PoE++ Adapter er spennugjafi (PoE injector) sem skilar allt að 60W yfir eina netsnúru – nóg fyrir aflfrekustu access punkta, myndavélar og annan PoE++ búnað frá UniFi. Hann hentar vel þar sem svissinn styður ekki PoE++ eða þegar PoE-aflið á svissinum er þegar fullnýtt.

Uppsetningin er einföld: netsnúra frá svissinum fer í gagnatengið og önnur snúra úr PoE-tenginu að tækinu, sem fær bæði gögn og rafmagn í gegnum sömu snúruna. Gigabit-hraði helst óskertur og innbyggð yfirspennuvörn verndar bæði spennugjafann og tengdan búnað.

Helstu eiginleikar:

  • Allt að 60W PoE++ afl: 48V DC yfir öll fjögur pör netsnúrunnar – fyrir búnað sem þarf meira afl en hefðbundið PoE+ getur veitt.
  • Gigabit gagnaflutningur: Gögn og rafmagn fara saman í gegnum eina snúru án þess að hægja á nettengingunni.
  • Léttir álagi af svissinum: Knýr tækið óháð PoE-getu svissins, sem nýtist vel með svissum án PoE eða með takmarkað PoE-afl.
  • Innbyggð yfirspennuvörn: Ver bæði gagna- og aflrásir gegn spennuhöggum.

2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA

Nánari upplýsingar á heimasíðu Ubiquiti

Gerð PoE++ spennugjafi (PoE injector) – 60W
PoE-afl Allt að 60W (48V DC, 1,25A) yfir 4 pör
Tengi 1x Gigabit LAN inn, 1x PoE++ út (RJ45)
Inntaksspenna 100–240V AC, 50/60 Hz (rafmagnssnúra fylgir)
Nýtni 85% eða meira
Yfirspennuvörn Já – á gagna- og aflrásum
Mál (L x B x H) 106 x 63 x 34 mm
Þyngd 210 g
Rekstrarhitastig 0°C til 40°C
Ábyrgð 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni

Við mælum með