Samsung Galaxy Tab S10 FE+ Wi-Fi 128GB – 13,1" spjaldtölva

  • 109.900 kr

Afhendingartími 5-7 virkir dagar

Samsung Galaxy Tab S10 FE+ er stór 13,1" spjaldtölva og S Penni fylgir með. Hún hentar vel í nám, glósur, teikningu og afþreyingu, og stóri skjárinn gerir þægilegt að hafa tvö forrit opin hlið við hlið.

Skjárinn er 2880 x 1800 með 90Hz og allt að 800 nita birtu utandyra. Exynos 1580 örgjörvi og 8GB vinnsluminni sjá um vinnsluna, og 10.090 mAh rafhlaðan dugar í allt að 21 klst. myndbandsáhorf. Tölvan er IP68 vatns- og rykvarin, aðeins 6 mm þykk og fær öryggisuppfærslur til ársins 2032.

Helstu eiginleikar:

  • 13,1" skjár: 2880 x 1800 upplausn, 90Hz og allt að 800 nit.
  • S Penni fylgir: Glósaðu, teiknaðu og skrifaðu í skjöl.
  • IP68 vatns- og rykvörn: Bæði spjaldtölvan og penninn.
  • Allt að 21 klst. rafhlöðuending: 10.090 mAh rafhlaða með 45W hraðhleðslu.

2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA

Nánari upplýsingar á heimasíðu Samsung

Örgjörvi Samsung Exynos 1580, átta kjarna (2,9 GHz + 2,6 GHz + 1,9 GHz)
Skjár 13,1" TFT, 2880 x 1800 (WQXGA+), 90Hz, allt að 800 nit
Vinnsluminni 8GB
Geymslupláss 128GB, microSD rauf (allt að 2TB)
Myndavél að aftan 13MP með sjálfvirkum fókus, 4K upptaka
Myndavél að framan 12MP
Hljóð Tveir hátalarar stilltir af AKG, Dolby Atmos
Penni S Penni fylgir
Tenging Wi-Fi 6 (802.11ax), Bluetooth 5.3, USB-C (USB 2.0)
Vörn IP68 vatns- og rykvörn
Rafhlaða 10.090 mAh, allt að 21 klst. myndbandsáhorf
Hleðsla 45W hraðhleðsla (hleðslutæki fylgir ekki)
Öryggi Fingrafaralesari í rofanum
Stýrikerfi Android með One UI, öryggisuppfærslur til 2032
Mál 300,6 x 194,7 x 6,0 mm
Þyngd 664 g
Litur Grá
Vörunúmer SM-X620NZAREUB
Ábyrgð 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni

Við mælum með