Logitech M500s USB mús með stillanlegum 400-4000 DPI laser
Logitech M500s er vönduð mús með snúru í fullri stærð, mótuð fyrir hægri hönd með gúmmíklæddum hliðum sem gefa gott grip. Hún hentar vel þeim sem vinna mikið í skjölum, töflureiknum og á vefnum.
Skrunhjólið getur skipt á milli ofurhraðs skruns og hefðbundins skruns með smellum, og hægt er að breyta næmninni frá 400 upp í 4000 DPI. Með Logi Options+ má setja flýtiaðgerðir á takkana.
Helstu eiginleikar:
- Ofurhratt skrun: Rennir í gegnum löng skjöl á augabragði eða skrunar nákvæmlega línu fyrir línu.
- 7 takkar: Hægt er að setja flýtiaðgerðir á takkana í Logi Options+, t.d. afrita/líma eða fram/til baka.
- Stillanleg næmni: 400–4000 DPI – hægt að aðlaga að stórum skjáum eða nákvæmri vinnu.
- Þægileg lögun: Full stærð með gúmmíklæddum hliðum fyrir gott grip allan daginn.
2 ÁRA ÁBYRGÐ HJÁ TÖLVUTÆKNI TIL BÆÐI EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA
Nánari upplýsingar á heimasíðu Logitech
| Gerð | Mús með snúru – fyrir hægri hönd |
| Skynjari | High Precision optical |
| Næmni | 400–4000 DPI |
| Takkar | 7 (þar af skrunhjól með hliðarskruni) |
| Skrunhjól | Ofurhratt skrun og hliðarskrun |
| Tenging | USB-A snúra (1,8 m) |
| Hugbúnaður | Logi Options+ |
| Mál (L x B x H) | 126 x 69 x 42 mm |
| Þyngd | 144 g |
| Ábyrgð | 2 ára ábyrgð hjá Tölvutækni |